1xTEN: 10 ára afmæli 1xINTERNET fagnað

4 min.
Teymið okkar með 1x bikar

Mánudaginn 11. desember fagnar 1xINTERNET risastórum áfanga, en þá verðum við 10 ára. Þann 24. nóvember, nýttum við tækifærið og héldum upp á áfangann í Frankfurt. Kvöldið einkenndist af hlátri, hlýju og þakklæti, þegar við komum saman ásamt fjölskyldum, vinum og viðskiptavinum til að fagna og minnast alls þess sem við höfum afrekað síðasta áratuginn.

Þróunin í gegnum árin

1xINTERNET var stofnað árið 2013 af þremur snillingum: Baddy, Christoph og Stefan. Í upphafi var það lítið en á þessum tíu árum hefur fyrirtækið vaxið hratt og örugglega og skipað sér sess sem eitt af leiðandi hugbúnaðarhúsum í Evrópu. Þetta afmæli gerði okkur kleift að fagna ótrúlegu ferðalagi okkar! Við höfum sigrast á ýmsum áskorunum og notið mikillar velgengni og allir sem hafa komið að fyrirtækinu undanfarinn áratug hafa lagt sitt að mörkum.

Staðurinn og stemningin

Veislan var haldin í Güterbahnhof, í hinum fallega bæ Bad Homburg, nálægt stórborginni Frankfurt am Main. Salurinn var skreyttur með glóandi blöðrum og lömpum. Lýsingin setti tóninn og skapaði hlýlegt og aðlaðandi andrúmsloft, og rauði dregillinn gerði allt glæsilegra og gestir fengu smjörþefinn af stjörnulífinu. Það sem setti punktinn yfir i-ið var að allir voru klæddir upp og litu alveg ótrúlega vel út!

Fjölskylda og vinir

Eitt af því sem gerði kvöldið svona sérstakt var að hafa fjölskyldur okkar og vini með. Viðburðurinn snerist ekki bara um fagleg afrek okkar, heldur gátum við tjáð fólkinu sem hefur verið hluti af bæði einkalífinu og vinnunni þakklæti. Það var yndislegt að rifja upp minningar og eiga samverustund meðan við litum til baka á ferðalagið sem leiddi okkur öll saman.

Samstarfsfélagar og liðsheild

Forsenda árangurs er gott teymi. Teymið okkar hefur verið drifkrafturinn á bak við öll okkar afrek, allt frá fyrstu tíð. Afmælisveisluhöldin gáfu okkur tækifæri til að slaka á, hlæja og styrkja böndin sem gera vinnuumhverfið þægilegt og öruggt.

Við erum þakklát fyrir frábæra viðskiptavini

Viðskiptavinir okkar gegna lykilhlutverki þegar kemur að þróun og velgengni 1xINTERNET, og því voru þeir einnig ómissandi hluti af hátíðarhöldunum. Þetta var tækifæri til að þakka fyrir traust þeirra og samstarf á liðnum áratug. Það er okkur hjartans mál að mynda varanleg tengsl við viðskiptavini okkar og því þótti okkur ótrúlega vænt um að fá þau í afmælið.

Eftirminnileg atvik

Kvöldið var fullt af mörgum ógleymanlegum augnablikum: hugljúfum ræðum, lifandi tónlist, óvæntum uppákomum, gjöfum og miklu fjöri. Við vorum með myndabás og ljósmyndara á staðnum sem  fangaði gleði allra á staðnum og skapaði varanlegar minningar sem munu varðveitast um ókomna tíð. 

Í framhaldinu

Nú þegar við höfum fyllt okkar fyrsta tug, hlökkum við til spennandi tækifæra sem eru framundan. Ferðalagið hingað til hefur verið ótrúlegt og með stuðningi fjölskyldna okkar, vina, samstarfsfólks og viðskiptavina hlökkum við til að þróast enn frekar, takast á við fleiri áskoranir og að upplifa fleiri sameiginleg afrek.

Á 10 ára afmæli 1xINTERNET í Frankfurt komu saman allir þeir sem stuðla að velgengi okkar - fjölskylda, vinir, samstarfsfélagar og viðskiptavinir. Þetta var meira en bara áfangi; viðburðurinn sýndi skýrt kraftinn í samvinnu, metnaði og sameiginlegum markmiðum. Ferðalag okkar snýst ekki bara um síðastliðin 10 ár, heldur fólkið sem hefur gert þessi ár einstök. Nú heldur ferðalagið áfram og þessi veisla býr í hjörtum okkar, eflir teymið og hvetur okkur til að ná enn lengra.

Deila grein

Fleiri greinar

News

1xINTERNET in 2023: End of year recap

Max, Freddy, Jesus and Roya with raised fists showing team power

Looking at back at some of the highlights from 2023. An exciting, busy and productive year for the...

12 min.
Viðburðir

1xCAMP í Conil de la Frontera 2023

Útsýni yfir strönd og viðarskilti sem vísar leiðina á mismunandi strendur

Einu sinni á ári komum við saman í nokkra daga á einhverjum fallegum stað. Í ár varð Conil de la...

6 min.